IOC kynnir mótaröð í rafíþróttum
Alþjóðaólympíunefndin (IOC) hefur kynnt fyrirkomulag á mótaröð í rafíþróttum, „Olympic Esports Series 2023“ sem er keppni í rafíþróttum í hermum og með rafrænum hætti á heimsvísu en IOC átti frumkvæðið að mótaröðinni og er hún í samvinnu við alþjóðasérsambönd og leikjaframleiðendur.
Búið er að staðfesta að keppt verður í eftirfarandi greinum:
Keppnin er hafin en lokakeppnin í þessum greinum fer fram dagana 22. til 25. júní nk. í Singapore á viðburði sem fékk nafnið „Olympic Esports Week 2023“.
Skilgreining IOC á rafíþróttum er m.a. grunnurinn að þeirri skilgreiningu íþróttahreyfingarinnar sem samþykkt var á Íþróttaþingi ÍSÍ árið 2021 og er:
„75. Íþróttaþing ÍSÍ samþykkir að innan íþróttahreyfingarinnar verði hugtakið rafíþróttir notað um rafræna íþróttaleiki, bæði sýndaríþróttaleiki (hermileiki) og aðra íþróttaleiki sem byggja á viðurkenndum íþróttagreinum innan íþróttahreyfingarinnar.
Í þeim tilfellum sem rafíþróttir eru skilgreindar innan viðkomandi alþjóðasérsambanda eru það viðkomandi sérsambönd ÍSÍ sem fara með forræði þeirra hér á landi, enda byggja þær á viðurkenndum íþróttagreinum innan ÍSÍ.
Aðilar innan vébanda ÍSÍ eru hvattir til að virða útgefin aldursmörk þeirra leikja sem spilaðir eru á vettvangi þeirra, auk þess að tryggja að inntak leikjanna sé í samræmi við siðareglur og gildi viðkomandi félags og þeirra samtaka sem þau tilheyra.“
Frekari upplýsingar um viðburðinn má finna: https://olympics.com/ioc/news/ioc-announces-olympic-esports-series-2023