Akstursíþróttasamband Íslands hélt ársþing sitt 18. mars 2017.
Tryggvi M. Þórðarson gaf áfram kost á sér sem formaður og var hann sjálfkjörinn. Í stjórn sitja áfram Einar Gunnlaugsson, Sigurður Gunnar Sigurðsson, Jón Bjarni Jónsson, Ragnar Róbertsson og Helga Katrín Stefánsdóttir. Torfi Arnarson var auk þess kosinn til tveggja ára.
Þórður Bragason gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og eru honum þökkuð góð störf í þágu AKÍS og akstursíþrótta.
Í varastjórn voru kosnir Baldvin Hansson, Garðar Þór Garðarsson og Kristinn Snær Sigurjónsson.
Á þingið mættu kjörmenn frá 9 íþróttafélögum sem stunda akstursíþróttir auk fulltrúa frá Ungmennafélaginu Heklu sem stofnuðu akstursíþróttadeild á síðasta ári.
Fulltrúar ÍSÍ á þinginu voru Hafsteinn Pálsson, sem einnig gegndi starfi þingforseta.
Samþykktar voru nokkrar breytingar á lögum, keppnisreglum og reglugerð um keppnisráð.
Lagðar voru fram og samþykktar eftirtaldar reglugerðir:
Ársþing AKÍS 2017 samþykkti tvær ályktanir: