Þann 14. janúar 2020 var haldinn í sal ÍSÍ fundur með keppendum og áhugamönnum um akstursíþróttir um nýþýddar öryggisbúrareglur í akstursíþróttum.
Fundinn sóttu um áttatíu manns og í framhaldi af framsögu formanns um málið spunnust fjörugar og málefnalegar umræður út frá þeim spurningum sem fram komu.
Kynninguna sem stjórn AKÍS var með er hægt að nálgast hér, en nauðsyn er að draga saman það helsta sem kom fram á fundinum.
Markmið með þýðingu reglnanna er að bæta öryggi keppenda. Í framhaldi af því þarf að taka upp nýtt vinnulag við úttekt öryggisbúra.
Í ljós kom að ekki eru til nákvæmar og öruggar heimildir um ástand öryggisbúra í keppnistækjum hérlendis og ákvað stjórn AKÍS því að ráðast í það að gera úttekt á öryggisbúrum í öllum keppnistækjum. Tímaáætlun hefur verið sett fram þannig að skráningu allra öryggisbúra verði lokið fyrir upphaf eiginlegs keppnistímabils í ár.
AKÍS hefur nú opnað fyrir skráningu á skoðun öryggisbúra.
FIA hefur nýlega gefið akstursíþróttasamböndum heimild til að gefa út svokallaðar lands gerðarvottanir. Þannig að þessi úttekt öryggisbúranna er liður í því að slíkt komist á hérlendis.
Meginniðurstöður
fá frest til að laga það til 1. maí 2021. Tíma þennan mun AKÍS nota til þess að skoða hvað hefur verið gert í öðrum löndum í kringum okkur í þessum efnum og áskilur AKÍS sér rétt til að breyta undanþágum til samræmis við útkomu þeirrar skoðunar og framlengja frest ef ástæða þykir.
Þannig er ljóst að á þessu ári geta öll keppnistæki sem kepptu á síðasta ári áfram verið með í ár með lágmarks tilkostnaði.
Fundur er áætlaður hjá Bílaklúbbi Akureyrar sunnudaginn 19. janúar 2020 kl. 16:00 og vonumst við til að sjá sem flesta þar.