Ársþing Akstursíþróttasambands Íslands verður haldið laugardaginn 8. mars 2025.
Tilkynningar um framboð til formanns - og stjórnarkjörs skulu berast stjórn AKÍS eigi síðar en þremur vikum fyrir ársþing, það er fyrir miðnætti laugardaginn 15. febrúar 2025.
Tillögur sem óskast teknar fyrir á ársþingi, skulu hafa borist stjórn AKÍS þremur vikum fyrir þing, það er fyrir miðnætti laugardaginn 15. febrúar 2025.
Framboð og tillögur skulu vera send á akis@akis.is