Birtar hafa verið uppfærðar keppnisreglur í Rallycross fyrir árið 2021
Eftirfarandi eru breytingar sem verða á keppnisreglum
Við grein 3.2.5 bætist nýr liður:
3.2.5.b Keppnishaldara er heimilt að setja sérstök takmörk á fjölda aðstoðarmanna með sérreglum ef ytri aðstæður krefjast þess, að fengju samþykki keppnisráðs í rallycrossi.
Við grein 5 bætist ný grein og undirgreinar:
Grein 5.5 ÖRYGGISFULLTRÚI
5.5.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
5.5.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.
5.5.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu til AKÍS um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
5.5.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild á að óhappi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
5.5.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
Sjá má keppnisreglurnar hér.