Um leið og ég óska keppendum gleðilegs nýs árs vil ég benda á að hægt er að biðja um skoðun á öryggisbúrum á heimasíðu AKÍS. Slóðin er : https://www.akis.is/skodun/ en líka er myndahlekkur sem auðvelt er að finna á heimasíðu sambandsins. Bergur Þorri Benjamínsson framkvæmastjóri AKÍS.
Eins og flestir vita hefur heilbrigðisráðherra nú gefið út nýja auglýsingu um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Auglýsingin tók gildi á hádegi, 31. júlí, og gildir til 13. ágúst. Helstu tilmæli sem snerta akstursíþróttir á þessu tímabili: Takmörkun á fjölda einstaklinga sem kemur saman miðist við 100 fullorðna. Hvar sem fólk kemur saman og í […]
Í febrúar á þessu ári var sett á fót Öryggisnefnd AKÍS sem ætlað er að vinni þvert á keppnisgreinar að öryggismálum í víðu samhengi. Nefndin mun vinna náið með keppnisráðum og aðildarfélögum. Í nefndina voru skipuð: Aðalsteinn Símonarson formaður Páll Pálsson Erla Sigurðardóttir Elsa Kr. Sigurðardóttir Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir
Skoðunardagar hafa verið ákveðnir hjá KK, AÍFS og BA 30. maí. Torfærubílar skoðaðir á Egilsstöðum á föstudegi fyrir keppni. Stefnt er að því að öll öryggisbúr verði skoðuð og skráð fyrir fyrstu keppni. Hægt er að skrá skoðun öryggisbúr hér á vef AKÍS.
Skoðun öryggisbúra hefur farið ágætlega af stað. Þar sem nú er í gildi samkomubann og nálægðarmörk eru enn tveir metrar er hinsvegar ljóst að laga þarf skipulag að breyttum aðstæðum. AKÍS hefur því ákveðið að heimsækja keppendur í skúra þeirra og skoða búrin á staðnum. Verkefnið verður skipulagt út frá landsvæðum, þannig að fyrst verður […]
Skoðun öryggisbúra verður haldið áfram en föstum skoðunardögum verður breytt þannig að gefinn verður ákveðinn tími til að koma með keppnistækið til skoðunar til að fækka þeim sem eru á staðnum eins og hægt er.
Í lok febrúar var fyrsti skipulagði úttektardagur öryggisbúra. Bíljöfur opnaði verkstæði sitt fyrir úttektarmönnum og keppendum. Næstu skoðunardagar hafa verið ákveðnir og hægt að skrá sig hér: 7. mars 2020 á Selfossi - Ljónsstaðir 28. mars 2020 á Akureyri 4. apríl 2020 í Reykjanesbæ 18. apríl 2020 í Reykjavík 9. maí 2020 í Reykjavík Skoða […]
Eins og flestir vita er hafin vinna við úttekt öryggisbúra í keppnistækjum. Sett hefur verið upp tímaáætlun og vonast er til að flest keppnistæki verði komin með fulla skráningu fyrir fyrstu keppnir í sumar. Þann 31. janúar 2020 fóru tilvonandi úttektarmenn AKÍS yfir verkferil við skráningu og voru tekin keppnistæki úr mismunandi greinum. Enn eru […]
Þann 14. janúar 2020 var haldinn í sal ÍSÍ fundur með keppendum og áhugamönnum um akstursíþróttir um nýþýddar öryggisbúrareglur í akstursíþróttum. Fundinn sóttu um áttatíu manns og í framhaldi af framsögu formanns um málið spunnust fjörugar og málefnalegar umræður út frá þeim spurningum sem fram komu. Kynninguna sem stjórn AKÍS var með er hægt að […]