Fyrsta umferð Íslandsmótsins í Gokart fór fram laugardaginn 28.maí síðastliðinn í ágætisveðri á akstursíþróttasvæði AÍH í Kapelluhrauni.
Mótið, sem er á vegum Akstursíþróttasambands Íslands (AKÍS), fór fram í umsjá Gokartdeildar Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar.
Tímataka hófst klukkan 12:00 og þar náði Gunnlaugur Jónasson besta tíma, 42,321 sek, á eftir honum röðuðu Ragnar Skúlason og Hafsteinn Örn Eyþórsson sér í næstu tvö sæti.
Keppnin hófst svo 12:30.
Ragnar Skúlason sigraði fyrsta heat sem gaf honum 10 stig og einnig ráspól í næsta heat, á eftir honum komu Gunnlaugur í öðru sæti og Birkir Fannar í því þriðja.
Í öðru heat sigraði Ragnar, á eftir honum röðuðu Gunnlaugur og Hafsteinn sér í annað og þriðja sæti.
Ragnar var því í góðri stöðu fyrir síðasta heat, en lendir í því að slíta bensíninngjafarbarka og datt því niður í sjötta sæti, Gunnlaugur náði fyrsta sæti,
Hafsteinn öðru og Birkir var svo í því þriðja.
Staðan í Íslandsmótinu má sjá hér.
Meðfylgjandi eru svo niðurstöður úr hverju heat fyrir sig með öllum keppendum, og myndir frá deginum.
Fyrsta umferð - Íslandsmót Gokart 28 maí
Fyrir hönd Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar
Arnar Már Pálmarsson Varaformaður