Haustfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun

11.9.2024

Haustfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun

Haustfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun allra stiga hefst mánudaginn 16. september næstkomandi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ.
Skráning fer fram á Abler:
http://www.abler.io/shop/isi
Nemendur velja rétt námskeið og ganga frá greiðslu námskeiðsgjaldsins í heimabanka. Þeir sem ekki hafa skráð sig áður í Sportabler þurfa að búa til nýjan aðgang undir „Nýr notandi“.
Allar nánari upplýsingar um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-146 & 863-1399 eða á vidar@isi.is