Íslandsmót í kvartmílu frestað til 17. ágúst

12.7.2024

Íslandsmót í kvartmílu frestað til 17. ágúst

Með tilvísun í veðurspá helgarinnar frá nokkrum veðurstöðvum, gula viðvörun og rigningarspá hefur framkvæmdanefnd ákveðið að fresta keppni á Íslandsmót í kvartmílu 2. umferð.

Keppnina  átti að halda laugardaginn 13. júlí 2024 en verður frestað til laugardagsins 17. ágúst 2024.

Þann dag er fyrirhuguð 3. umferð á íslandsmótinu í kvartmílu og verða því tvær umferðir keyrðar þann dag.