Fjórar íslenskar áhafnir í rally tóku þátt í mótaröðinni BTRDA (British Trial Drivers Association nú um helgina. Yfir 100 áhafnir voru skráðar til leiks. Eknar voru sjö sérleiðir á tveimur dögum.
Keppni hófst á föstudagskvöldinu á fyrstu tveimur sérleiðum í myrkri má segja það hafi verið krefjandi fyrir íslensku keppendurnir sem hafa aðeins verið að keppa í björtu hér heima.
Reynsluboltarnir Daníel Sigurðsson og Ásta Sigurðardóttir voru að keppa í B14 flokki á R5 fiestu. Daníel og Ásta enduðu í níunda sæti yfir heildina og skiluðu bílnum heilum í mark. Þau stefna að taka þátt í næstu keppni sem er í apríl.
Íslandsmeistararnir Gunnar Karl Jóhannesson og Ísak Guðjónsson tóku einnig þátt í B14 flokknum á Ford Fiesta R5 sem þeir nýlega keyptu. Þeir félagarnir enduðu í 14 sæti í heildina eftir að hafa fallið niður um þrjú sæti við að sprengja dekk á sérleiðinni.
Jóhann Ingi Fylkisson var að taka þátt í sinni annarri keppni í bresku rally á Mitsubishi Evo 9, Jóhann var með nýjan aðstoðarökumann með sér og það var hún Hanna Rún Ragnarsdóttir sem fékk að leiða þau í gegnum krefjandi sérleiðir. Jóhann og Hanna enduðu í 6 sæti í sínum keppnisflokk og 28 sæti yfir heildina.
Nýliðarnir Agnar Ingi Sigurðsson og Valgarður Davíðsson voru að taka þátt í sinni fyrstu keppni erlendis. Þeir voru skráðir í flokkinn R2 á Ford Ford Fiesta R2. Þeir urðu í 3 sæti í sínum flokki og 46 sæti yfir heildina flottur árangur í sinni fyrstu keppni erlendis á nýjum bíl.
Allar áhafnir skiluðu bílunum heilum í lok keppni og má segja að það verður spennandi að fylgjast með þessu flottu keppendum í næstu keppnum.