Námskeið fyrir keppnisstjóra og dómnefnd
12.3.2025
Opnað hefur verið fyrir skráningu á námskeið fyrir keppnisstjóra og þá sem hafa áhuga að starfa í dómnefndum á keppnum hjá AKÍS.
Námskeiðið er opið fyrir alla sem hafa áhuga á að kynnast og taka þátt í störfum keppnisstjóra og dómnefnda.
Þeir sem skrá sig fá tengil í myndbönd þar sem farið er yfir námsefnið og rætt um það. Þannig getur hver sem er "setið" námskeiðið hvenær sem er sólarhrings, eftir því hvað hverjum er heppilegt.
Síðan verður sameiginlegur verkefnisfundur þar sem farið verður yfir helstu atriði og dæmi leyst.