Fyrsta umferð Íslandsmóts í Rallycross var haldin síðastliðna helgi, sunnudaginn 16. maí á aksturssvæði Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar í Kapelluhrauni. Skráningarmet í Íslandsmótið féllu hvað eftir annað, fjöldi skráðra keppnistækja 46 samtals og aldrei verið fleiri í einu Íslandsmóti frá stofnun AÍH. 42 keppendur komust alla leið á ráslínu þar sem bilanir og annað komu upp hjá […]
Tveimur keppnum sem voru áætlaðar á næstu vikum hefur verið frestað þar til síðar í sumar. Að beiðni AÍH var umferð í Íslandsmóti í Drift sem átti að fara fram á Akstursíþróttasvæði AÍH 22.maí var frestað til 30.maí nk. Að beiðni KK var umferð í Íslandsmóti í Torfæru sem átti að fara fram […]
1. umferð Íslandsmóts í kappakstri fer fram á hringakstursbraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 29. maí 2021. http://skraning.akis.is/keppni/277 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar. Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar: Bílar - FORMULA 1000 kappakstursbílar Bílar - Standard 1000 kappakstursbílar Bílar - Opinn […]
Laugardaginn 15.maí fór fram Íslandsmót í sandspyrnu 2021 - 1. umferð Valur Jóhann Vífilsson setti glæsilegt Íslandsmet í opnum flokki 2,99 sek. Margir góðir tímar litu dagsins ljós á sandspyrnusvæði Kvartmíluklúbbsins Úrslit Sérsmíðuð ökutæki sæti Gauti Möller sæti Leifur Rósinbergsson sæti Stígur Andri Herlufsen sæti Auðunn Helgi Herlufsen Opinn flokkur sæti Valur Jóhann […]
Átján keppendur hófu keppni í tveimur flokkum. Keppnin var æsispennandi og var í beinni útsendingu á motorsport.is Hátt í 3000 manns fylgdust með streyminu. Strax í fyrstu braut voru það þeir Ólafur Bragi Jónsson á Refnum, Snorri Þór Árnason á Kórdrengnum og Skúli Kristjánsson á Simba sem tóku forystu í sérútbúna flokknum. Snorri leiddi framan af […]
Sindratorfæran verður í beinni útsendingu Laugardaginn 8 maí 2021 Þetta er í fyrsta skipti í rúmlega 50 ára sögu torfærunnar að hún er einungis sýnd í beinni útsendingu. Skjáskot er fyrirtækið sem ætlar að koma þessu heim í stofu með 4 myndavélum, incar, drónum, lýsendum og öllu tilheyrandi, til þess að gera upplifunina sem allra […]
Í mótakerfi AKÍS hefur verið birtar sérreglur fyrir Sindra torfæruna sem verður haldin þann 8.maí . Opnað verður fyrir skráningu í hádeginu á morgun. http://skraning.akis.is/keppni/280
Nú er komið að seinna öryggisfulltrúa námskeiðinu. Það verður haldið mánudaginn 10. maí frá kl 19:30 - 22:00. Við hvetjum sem flesta að mæta á þetta námskeið. Námskeiðið er í fjarfundi. Þeir sem ætla að sinna starfi sem öryggisfulltrúi á keppnum í sumar þurfa að hafa setið þetta námskeið. Skráning er hér á þessum link: […]
Vegna samkomutakmarkana er ljóst að í fyrstu umferð Íslandsmóts í torfæru verða fjöldatakmarkanir á keppninni. Sérreglur keppninnar með nákvæmri lýsingu á skráningarfyrirkomulagi verða birtar á vef AKÍS á hádegi þriðjudaginn 27. apríl og móttaka skráninga hefst í mótakerfi AKÍS á hádegi miðvikudaginn 28. apríl