Þjálfaramenntun í fjarnámi - Sumarönn 2024

16.5.2024

Sumarfjarnám ÍSÍ hefst mánudaginn 10. júní nk. og verður í boði að taka 1. og 2. stig þjálfaramenntunar ÍSÍ.  Fyrsta stigið tekur átta vikur en annað stigið tekur fimm vikur. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.

Hér má finna allar upplýsingar.

Nemendur velja rétt námskeið og ganga frá greiðslu námskeiðsgjaldsins í heimabanka.  Þeir sem ekki hafa skráð sig áður í Abler þurfa að búa til nýjan aðgang undir „Nýr notandi“.
Námskeiðsgjald:
1. stig kr. 36.000.-
2. stig kr. 30.000.-
Þjálfarar sem koma frá Fyrirmyndarfélögum ÍSÍ fá kr. 5000.- í afslátt.

Allar nánari uppl. um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 514-4000 & 863-1399 og/eða á vidar@isi.is.

 

Auglýsing fjarnám sumar 2024