Kæru keppendur,aðstoðarmenn og starfsfólk keppna síðasta árs.
Nú er komið að því að við skerpum á þekkingu okkar á Reglum í torfæru. Við í Torfæraráði ætlum að halda námskeið þann 22. Nóv n.k kl 15:00 á Café Catalinu í Hamraborg 11 í Kópavogi
Á þessu námskeið munum við fara yfir nýjustu reglurnar, hvaða breytingar eru í gangi,hvernig brautarteiknar og öryggisbúnaður er. Við viljum að allir sem hafa verið í lykilstöðum á síðasta ári mæti og og fari yfir þetta með okkur þannig að allir séu á sömu blaðsíðu á næsta keppnisári til að gera næsta ár enn betra.
Allir sem ætla að halda keppni eða keppa á næsta ári ættu að minnsta kosti að senda 1 fulltrúa á þetta námskeið.
Við ætlum að hafa svo hitting á SPOT um kvöldið þar sem við munum sjá gömul video af torfæruni.
Hlökkum til að sjá ykkur á laugardaginn 22 nóv.
Fyrir hönd torfæruráðs.
Helga Katrín Stefánsdóttir
S:861-7664