Umsóknir opnar fyrir námskeið í Ólympíu í sumar

29.1.2025

Umsóknir opnar fyrir námskeið í Ólympíu í sumar

Búið er að opna fyrir umsóknir um þátttöku á tveggja vikna námskeiði í Ólympíu í Grikklandi sem haldið verður í sumar. Umsókn er opin einstaklingum sem hafa náð góðum árangri í íþróttum eða starfað innan íþróttahreyfingarinnar, t.d. sem kennarar, þjálfarar eða í félagsstörfum, auk þess að sýna áhuga á málefnum Ólympíuhreyfingarinnar.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) auglýsir eftir tveimur þátttakendum á aldrinum 20–30 ára til að vera fulltrúar ÍSÍ á námskeiðinu, sem fer fram dagana 7.–19. júní 2025 bæði í Aþenu og Ólympíu. Þema námskeiðsins í ár er „Framtíð Íþrótta" með sérstakri áherslu á tengsl Ólympíuhreyfingarinnar og gervigreindar: tækifæri og ógnanir.

Fræðslan fer fram í formi fyrirlestra, hópavinnu, fræðsluferða og íþróttaþátttöku. Þátttakendum verður allt að kostnaðarlausu – flug, gisting og fæði eru greidd af ÍSÍ og Ólympíuhreyfingunni.

Skilyrði fyrir þátttöku:

  • Gott vald á ensku og/eða frönsku.
  • Vera á aldrinum 20 – 30 ára
  • Vera góð fyrirmynd og sýna jákvætt viðhorf.

Umsóknarfrestur er til 16. mars 2025.
Skráning fer fram í gegnum þennan hlekk.

 


Tilvitnun í reynslusögu frá þátttakanda árið 2024:

„Tíminn í Grikklandi er ævintýri sem ég mun aldrei gleyma. Í fluginu til Aþenu hugsaði ég með mér, „Hvað er ég búinn að koma mér út í?", með smá kvíðahnút í maganum. En um leið og við Melkorka löbbuðum út úr flugstöðinni, í sól og blíðu, breyttist kvíðinn í spenning.

Dagskráin hófst á þægilegan og fjölbreyttan hátt og samhliða kynntumst við hinum þátttakendum hægt og rólega. Sumir voru fyrrum ólympíufarar, aðrir sérfræðingar á sínu sviði, en margir voru að taka sín fyrstu skref á þessum vettvangi. Aðalatriðið var að hafa gott hugarfar, vera opin/n fyrir nýjum hlutum og njóta.

Það sem stendur upp úr frá ferðalaginu eru þær tengingar sem ég myndaði í Ólympíu. Ég er enn í reglulegum samskiptum við þá sem voru með mér úti – suma tala ég við daglega. Við styðjumst við í okkar verkefnum og skipuleggjum framtíðarferðalög sem hópur. Auk þess lærði ég mikið, bæði um Ólympíuhreyfinguna og sjálfan mig. Þetta var ótrúlega skemmtilegt!

Ég mæli hiklaust með því að sækja um 😊"
– Sveinn Samsted, þátttakandi 2024

Hér má lesa meira um reynslusögur frá fyrra ári: Frétt á heimasíðu ÍSÍ.


Frekari upplýsingar má fá hjá:

  • Ragnhildi Skúladóttur, sviðsstjóra Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ (ragnhildur@isi.is).
  • Þórarni Alvari Þórarinssyni, sérfræðingi hjá Fræðslu- og almenningsíþróttasviði ÍSÍ (alvar@isi.is).