Verðlaunaafhending meistaratitla akstursíþrótta fór fram í fundarsal ÍSÍ 11. nóvember 2017.
Krýndir voru íslandsmeistarar í öllum greinum akstursíþrótta.
Eftir tilnefningar frá keppnisráðum einstakra greina og netkosningu kaus Formannafundur AKÍS eina konu og einn karl sem Akstursíþróttamenn ársins.
Akstursíþróttakona ársins 2017 – Emilía Rut Hólmarsdóttir Olsen - AÍFS
Akstursíþróttamaður ársins 2017 – Ragnar Skúlason - AÍH
Þessi tvö eru tilnefnd af AKÍS til kjörs íþróttamanns ársins 2017.
Grein | Nafn | Félag | Stig |
Drift - Götubílaflokkur | Alexander Sigurðsson | AÍH | 588 |
Drift - Minni götubílar | Jökull Atli Harðarson | AÍH | 574 |
Go-Kart | Ragnar Skúlason | AÍH | 80 |
Rally – Aðstoðarökumenn AB Varahlutaflokkurinn | Emilía Rut Hólmarsdóttir Olsen | AÍFS | 87 |
Rally – Aðstoðarökumenn flokkur B | Hjalti Snær Kristjánsson | BÍKR | 81 |
Rally – Aðstoðarökumenn heildin | Anton Líndal | AÍH | 68.5 |
Rally – Ökumenn AB Varahlutaflokkurinn | Ragnar Bjarni Gröndal | AÍFS | 87 |
Rally – Ökumenn flokkur B | Baldur Arnar Hlöðversson | BÍKR | 81 |
Rally – Ökumenn heildin | Fylkir A. Jónsson | AÍH | 68.5 |
Rallycross – 2000 flokkur | Eiríkur Kristjánsson | AÍFS | 74 |
Rallycross – 4WD króna | Trausti Guðfinnsson | AÍH | 77 |
Rallycross – Unglingaflokkur | Arnar Freyr Viðarsson | AÍH | 60 |
Rallycross – Opinn flokkur | Ágúst Aðalbjörnsson | AÍFS | 57 |
Kvartmíla OF | Harry Þór Hólmgeirsson | KK | 377 |
Kvartmíla ST | Ingimar Baldvinsson | KK | 377 |
Kvartmíla TS | Hilmar Jacobsen | KK | 272 |
Götuspyrna 8 cyl. standard | Stefán Örn Steinþórsson | BA | 272 |
Sandspyrna – Jeppar | Númi Aðalbjörnsson | TKS | 210 |
Sandspyrna – Opinn flokkur | Kristján Hafliðason | KK | 288 |
Tímaat – Opinn götubílaflokkur | Brynjar Smári Þorgeirsson | KK | 68 |
Tímaat – Breyttir götubílar | Tómas H. Jóhannesson | KK | 93 |
Tímaat – Götubílar | Símon Helgi Wiium | KK | 75 |
Torfæra – Götubílar | Ragnar Skúlason | AÍH | 90 |
Torfæra – Sérútbúnir | Guðmundur Ingi Arnarsson | TKS | 86 |
Akstursíþróttakona ársins 2017 – Emilía Rut Hólmarsdóttir Olsen - AÍFS
Emilía Rut er á sínu fyrsta ári sem aðstoðarökumaður í AB varahlutaflokknum í Rally með Ragnari Bjarna Gröndal og tóku þau þátt í öllum keppnum ársins. Í fyrstu keppni lentu þau í fimmta sæti en settu síðan í fluggírinn og sigruðu þrjár keppnir í röð.
Mikill barátta var í þessum flokk í sumar og voru að meðaltali 10 bílar skráðir í flokkinn í hverju ralli.
Eftir að Íslandsmeistaratitill var í húsi var ákveðið að færa sig upp um flokk og keyptur öflugur túrbó 4x4 Lancer og lentu þau í öðru sæti í sinni fyrstu keppni í erfiðu og krefjandi næturally.
Emilía Rut er einnig öflug í keppnishaldi akstursíþrótta og hefur starfað við Rall, Rallycross og Torfæru. Emilía Rut er stjórnarmaður í AÍFS og í varastjórn ÍRB.
Öll framkoma og hegðun hennar er öðrum keppendum gott fordæmi.
Akstursíþróttamaður ársins 2017 – Ragnar Skúlason - AÍH
Ragnar er þekkt nafn í mótorsporti hér á landi. Hann byrjaði að keppa í Torfæru um 1990 á Galdragul og á allnokkra Íslandsmeistaratitla frá þeim tíma.
Ragnar er útnefndur akstursíþróttamaður ársins 2017 fyrir frábæran árangur í sumar. Ragnar náði Íslandsmeistaratitli í tveimur greinum á þessu keppnistímabili. Ragnar hefur verið aðaldriffjöðurin í GoKart undanfarin ár og hann varði Íslandsmeistaratitilinn í GoKart. Auk þess náði hann Íslandsmeistaratitli í Götubílaflokki Torfæru þrátt fyrir að hafa tekið langt hlé og ekki keppt í torfæru í mörg ár.